31 Janúar 2012 12:00

Lokun á Hverfisgötu í Reykjavík hefur verið aflétt en í morgun fannst þar torkennilegur hlutur, sem er talinn vera leifar af sprengju. Sprengjusveitir lögreglu og Landhelgisgæslunnar voru kallaðar til og gerðu þær viðeigandi ráðstafanir. Frekari upplýsingar verða birtar þegar málsatvik liggja betur fyrir.