22 Janúar 2008 12:00

Götuhópur fíkniefnadeildarinnar fann 26 skammta af LSD auk ætlaðs þýfis við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði um síðustu helgi. Þá var einnig gerð leit í bifreið utan við húsið og nutu lögreglumenn aðstoðar fíkniefnaleitarhunds. Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn og yfirheyrður vegna málsins og telst það upplýst.