Svipaður bíll og leitað er að.
30 Október 2015 15:33

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir dökkrauðum Citroen C3 með skráningarnúmerið MR632, en bílnum var stolið á Bollagötu í Reykjavík í byrjun mánaðarins. Sjáist bíllinn í umferðinni skal hringja tafarlaust í 112, en upplýsingum um hvar bíllinn er niðurkominn má sömuleiðis koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mögulega er búið að skipta um skráningarnúmer á bílnum.

Svipaður bíll og leitað er að.

Svipaður bíll og leitað er að.