31 Mars 2020 13:26

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir svörtum Ford Fiesta með skráningarnúmerið PDU32, en bílnum var stolið á Þrúðvangi í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag. Sjáist bíllinn í umferðinni þá vinsamlegast hringið tafarlaust í 112, en upplýsingum um hvar bíllinn er niðurkominn má sömuleiðis koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.