16 Nóvember 2022 16:03

Leitin að Friðfinni Frey Kristinssyni, 42 ára, hefur enn engan árangur borið, en síðast er vitað um ferðir Friðfinns fimmtudagskvöldið 10. nóvember þegar hann fór frá Kugguvogi í Reykjavík. Lögreglan biður þau sem eru með öryggis- og eftirlitsmyndavélar á því svæði og næsta nágrenni þess að hafa samband svo hún geti kannað hvort þar kunni að sjást til ferða Friðfinns eftir kl. 19 fimmtudaginn 10. nóvember. 

Þá eru íbúar í hverfinu beðnir um að skoða nærumhverfi sitt s.s. geymslur, stigaganga og garðskúra. Þau sem eru í forsvari fyrir auðu húsnæði í hverfinu eru beðin um að skoða slíka staði. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Friðfinns eru beðin að hafa samband við lögregluna í síma 112.

Friðfinnur er 182 sm á hæð, grannvaxinn, brúnhærður og með alskegg. Hann var klæddur í gráa peysu, gráar joggingbuxur og bláa íþróttaskó.