5 Maí 2020 15:22

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir grárri Mazda 6 með skráningarnúmerið TH305, en bílnum var stolið úr bílageymslu við Rauðarárstíg í Reykjavík í síðasta mánuði. Sjáist bíllinn í umferðinni þá vinsamlegast hringið tafarlaust í 112, en upplýsingum um hvar bíllinn er niðurkominn má sömuleiðis koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.