25 Janúar 2018 15:29

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Ríkharði Péturssyni fd. 3. apríl 1969.   Ríkharður, sem er meðalmaður á hæð, grannvaxinn,  fór frá heimili sínu að Eyrarvegi 46 á Selfossi um kl. 16:00 s.l. þriðjudag en ekki er vitað um ferðir hans eftir það.   Hann var þá klæddur í svartar buxur, svarta úlpu og svarta húfu með gulri áletrun.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ríkharðs eftir kl. 16:00 s.l. þriðjudag eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi í síma 4442000, 112 eða á einkaskilaboðum á Facebook.