30 Nóvember 2009 12:00

Lögreglan lýsir eftir Toyota Corolla fólksbifreið með skráningarnúmerið ZA-596 en hún hvarf frá Túngötu í Reykjavík 8. nóvember sl. Bifreiðin er dökkgrá að lit, árgerð 1992. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1100.