11 Desember 2009 12:00

Lögreglan lýsir eftir Volkswagen Transporter Panel Van sendibifreið með skráningarnúmerið UB-201 en henni var stolið frá Laugavegi 31 í Reykjavík í morgun. Bifreiðin er hvít að lit, árgerð 2001. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.