22 Mars 2023 15:03

Betur fór en á horfðist þegar lögreglan var kölluð að húsnæði Útlendingastofnunnar á Dalvegi í Kópavogi  í hádeginu, en þar var tilkynnt um mann sem hótaði að bera eld að sjálfum sér. Viðkomandi var rólegur en hafði hellt yfir sig eldfimum vökva og hélt á kveikjara. Ástæðan fyrir hótun mannsins mun vera óánægja hans með afgreiðslu máls, en umsókn hans um alþjóðlega vernd er til með ferðar hjá yfirvöldum. Maðurinn var færður af staðnum og fékk viðeigandi aðstoð.

Lögreglan var með talsverðan viðbúnað vegna málsins og einnig var slökkvilið í viðbragðsstöðu. Tilkynningin um hótunina barst kl. 12.23 og var aðgerðum lokið fyrir klukkan eitt.