16 Júní 2020 15:48

Maður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 13. júlí í Héraðsdómi Reykjavíkur að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Manninum er gert að sæta gæsluvarðhaldi, annars vegar á grundvelli rannsóknarhagsmuna og hins vegar á grundvelli þess að lögregla telji hættu á áframhaldandi brotastarfsemi af hans hálfu. Maðurinn er grunaður um að hafa ráðist á konu á heimili hennar miðsvæðis í Reykjavík í gær og er málið rannsakað sem tilraun til manndráps. Konan sem varð fyrir líkamsárásinni er ekki talin í lífshættu. Lögregla getur ekki veitt nánari upplýsingar um málið að svo stöddu en rannsókn þess miðar vel.