29 Október 2020 10:52

Maðurinn sem leitað hefur verið að í Stafafellsfjöllum frá því í gærkvöldi er fundinn heill á húfi.   Hann er nú á leið til byggða með björgnarsveitarmönnum.   Lögreglan á Suðurlandi þakkar leitarmönnum og öllum þeim sem aðstoðað hafa við verkefnið kærlega fyrir þeirra framlag.

Á annað hundrað leitarmanna voru við leit og fleiri á leið á vettvang til aðstoðar.  Þeim hefur nú verið snúið frá og eru væntanlega á heimleið í dag.