10 Mars 2021 16:17

Einn var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í viku eða til miðvikudagsins 17. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um miðjan febrúar. Fjórir eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.