23 Febrúar 2021 16:02

Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald, eða til þriðjudagsins 2. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um þar síðustu helgi. Þá voru tveir úrskurðaðir í tveggja vikna farbann, eða til þriðjudagsins 9. mars, vegna málsins, en gæsluvarðhald yfir þeim rann út í dag.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.