19 Febrúar 2021 15:06

Karlmaður á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi fimm daga gæsluvarðhald, eða til miðvikudagsins 24. febrúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um síðustu helgi.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.