1 Mars 2021 19:01

Einn var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í átta daga farbann, eða til þriðjudagsins 9. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni í síðasta mánuði. Viðkomandi hafði áður setið í gæsluvarðhaldi og átti það að renna út nk. miðvikudag.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.