17 Febrúar 2021 23:06

Þrír voru í kvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald, eða til miðvikudagsins 24. febrúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um síðustu helgi. Áður höfðu fjórir þegar verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins, en þeir sem eru í haldi eru allir á fertugsaldri utan einn, sem er á fimmtugsaldri.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.