20 Febrúar 2021 16:33

Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald, eða til föstudagsins 26. febrúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um síðustu helgi.

Maðurinn er sá níundi sem er úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.