22 Október 2010 12:00

Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 19. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana þann 15. ágúst sl. Lögð var fram krafa um fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald og á hana var fallist í Héraðsdómi Reykjaness. Maðurinn unir niðurstöðunni.