27 September 2002 12:00

Kl.  21.35 í gærkvöldi var tilkynnt til Neyðarlínunnar  að karlmaður hafi orðið fyrir árás í húsi við Klapparstíg og væri slasaður.  Lögregla og sjúkralið fóru þegar á vettvang. Á vettvangi kom í ljós að maðurinn hafði orðið fyrir hnífsstungu en árásarmaðurinn hlaupið í burtu.

Maðurinn var með meðvitund eftir árásina og gat gert vart við sig hjá nágrönnum sem hringdu strax  á lögreglu og sjúkralið. Maðurinn skýrði lögreglumönnum frá því sem gerst hafði. Hann var þegar í stað fluttur á slysadeild en var úrskurðaður látinn  rétt eftir að þangað kom.

Lögregla hóf þegar víðtæka leit að manninum sem talinn er vera árásarmaðurinn og var hann handtekinn í austurborginni um kl. 23.10. Hann er nú í haldi lögreglu. Rannsókn málsins hófst strax í gærkvöldi og stendur enn, sömuleiðis vettvangsrannsókn.

Frekari upplýsingar um málið er ekki hægt að veita að svo stöddu.

Ákvörðun um gæsluvarðhald verður tekin síðar í dag

Maðurinn sem lést var 65 ára gamall Reykvíkingur.

Hinn grunaði er einnig Reykvíkingur, 35 ára gamall.

Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn