8 Desember 2019 17:26

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mannslát, en á þriðja tímanum í dag barst beiðni um aðstoð frá austurborginni þar sem karlmaður hafði fallið fram af svölum. Maðurinn var fluttur á Landspítalann, en var úrskurðaður látinn eftir komuna þangað. Fimm hafa verið handteknir í þágu rannsóknarinnar, sem er á frumstigi. 

Hinn látni var erlendur ríkisborgari, sem og þeir fimm sem eru í haldi lögreglu. 

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.