14 Febrúar 2021 11:26

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að húsi í austurborginni um miðnætti í gærkvöld, en þar var tilkynnt um slasaðan karlmann utan við húsið. Endurlífgunartilraunir hófust strax á vettvangi og í kjölfarið var maðurinn fluttur á Landspítalann, en var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna þangað. Maðurinn var á fertugsaldri.

Rannsókn málsins er á frumstigi, en einn er í haldi í þágu hennar.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Búast má við annarri tilkynningu frá lögreglu þegar rannsókn málsins vindur fram, líklega síðar í dag.