8 September 2008 12:00

Karl á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 15. september. Hann er grunaður um aðild að máli manns sem fannst látinn í húsi á Skúlagötu í Reykjavík í síðustu viku. Karl á sextugsaldri, sem sat í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar sama máls, er laus úr haldi.