19 Desember 2019 14:49

Karlmaður um fimmtugt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 16. janúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á mannsláti í austurborginni um þar síðustu helgi.

Eins og fram hefur komið féll hinn látni, sem var á sextugsaldri, fram af svölum íbúðar fjölbýlishúss í austurborginni og var fluttur á Landspítalann þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Rannsókn lögreglu gengur vel, en hún miðar að því að leiða í ljós með hvaða hætti maðurinn féll fram af svölunum.