7 Maí 2021 14:34

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í áframhaldandi átta vikna farbann, eða til 2. júlí, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mannsláti í Kópavogi í byrjun síðasta mánaðar.

Rannsókn málsins miðar vel, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.