15 Febrúar 2015 17:00

Kona á sextugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðuð í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna til 23. febrúar að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á mannsláti. Konan var handtekin í heimahúsi í Hafnarfirði í gærdag, en í íbúðinni fannst sambýlismaður hennar látinn þegar komið var á vettvang, en lögreglu barst tilkynning um málið á þriðja tímanum í gær. Á manninum, sem var um fertugt, var stungusár, en grunur leikur á að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti.