11 Október 2022 11:04

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sleppt tveimur mönnum úr haldi sem handteknir voru í tengslum við rannsókn á andláti konu nú um helgina. Niðurstaða réttarmeinafræðings er sú að áverkar sem voru á hinni látnu hafi ekki leitt til andláts hennar og sé því ekki lengur grunur um að það hafi borið að með refsiverðum hætti.

Við skoðun lögreglu og réttarmeinafræðings á vettvangi í upphafi málsins, komu fram margir óljósir þættir sem þörfnuðust frekari skoðunar. Af þeim sökum voru tveir menn handteknir sem höfðu tengsl við hina látnu. Þeir voru síðar úrskurðaðir í gæsluvarðhald til fimmtudagsins 13.október en hafa nú verið látnir lausir. Rannsókn lögreglu er enn í gangi.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.