30 Apríl 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann marijúana við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í dag. Um var að ræða tæplega 3 kg en marijúanað var ætlað til sölu. Karl um þrítugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.