22 Ágúst 2014 12:00

Tveir stórviðburðir verða í höfuðborginni laugardaginn 23. ágúst, Reykjavíkurmaraþon og menningarnótt. Búast má við miklum mannfjölda í miðborg Reykjavíkur af þessu tilefni. Vegna lokunar miðborgarinnar kunna einhverjar umferðartafir að verða og eru vegfarendur beðnir um að sýna þolinmæði og skilning.

Gestir menningarnætur og íbúar í miðborginni eru hvattir til að kynna sér vel lokanir gatna og möguleg bílastæði utan svæðis, sem og strætósamgöngur sem verða ókeypis þennan dag. Lokanir gatna á menningarnótt má sjá hér. Ökumenn sem leggja ökutækjum sínum ólöglega geta búist við stöðubrotsgjaldi eða að ökutækin verði fjarlægð.

Vegfarendum er að öðru leyti bent á að kynna sér upplýsingar um viðbúnað borgaryfirvalda á vef menningarnætur, www.menningarnott.is eða í dagblöðum. Símaver Reykjavíkurborgar er opið á menningarnótt frá kl. 9-23 og veitir upplýsingar í síma 4 11 11 11.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stendur að sjálfsögðu vaktina á menningarnótt, en auk hefðbundinnar löggæslu verður gagnlegum upplýsingum, t.d. um umferðarmál, miðlað á fésbókarsíðu embættisins eins og kostur er. Fyrirspurnum sem berast á fésbókarsíðu lögreglunnar á menningarnótt verður svarað eins fljótt og auðið er.