18 Ágúst 2018 19:00

Menningarnótt hefur gengið mjög vel fram að þessu og er mikill mannfjöldi í bænum.  Veður frábært til útiveru og skemmtunar. Lögreglan villa minna vegfarendur á að virða þær lokanir sem hafa verið settar upp og fara eftir leiðbeiningum þeirra sem eru við umferðarlokanir. Enn og aftur hvetjum við fólk til að nýta sér strætó og leggja ökutækjum löglega.

Lögreglan hafði afskipti af einum ökumanni sem virti ekki lokanir inn á afmarkað hátíðarsvæði og reyndist hann vera ölvaður undir stýri. Einn einstaklingur var þá handtekinn í Pósthússtræti vegna ölvunar.

Lögreglan vill brýna það sérstaklega fyrir foreldrum að skilja börn sín ekki eftir í miðbænum þegar dagskránni lýkur með flugeldasýningu. Lögreglan mun taka mjög hart á drykkju unglinga og vonast eftir góðri liðveislu foreldra í því. Lögreglan færir börn yngri en 16 ára í athvarf fyrir ungmenni séu þau úti eftir lögboðinn útivistartíma samkvæmt barnaverndarlögum svo og þau ungmenni yngri en 18 ára sem eru undir áhrifum áfengis og/eða annarra vímugjafa.

Góða skemmtun –  njótum saman sem fjölskylda og verum góðar fyrirmyndir. Hlökkum til að eiga frábært kvöld saman.