2 September 2009 12:00

Mikið er um stöðubrot í Reykjavík en í gær hafði lögreglan afskipti af tæplega þrjátíu ökutækjum vegna þessa. Einkum var um að ræða bifreiðar í miðborginni og nágrenni hennar. Með stöðubroti er átt við ökutæki sem er lagt ólöglega, m.a á gangstéttum. Umráðamönnum þessara ökutækja er gert að greiða 2500 kr. en gjaldið rennur í Bílastæðasjóð.