16 Nóvember 2019 11:21

Árleg alþjóðleg minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa verður haldin við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi sunnudaginn 17. nóvember kl. 14. Sambærilegar athafnir verða haldnar víða um land á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Þetta er í áttunda sinn sem minningardagurinn er haldinn hér á landi. Hliðstæð athöfn fer fram víða um heim undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu.

Hugað að stöðu aðstandenda
Allir eru velkomnir að taka þátt í minningarathöfninni við þyrlupall bráðamóttökunnar í Fossvogi. Boðað verður til einnar mínútu þagnar kl. 14:15 og eru allir sem eiga þess kost hvattir til að taka þátt í því. Í ár verður kastljósinu sérstaklega beint að erfiðum aðstæðum aðstandenda eftir umferðarslys. Ása Ottesen mun flytja ávarp við athöfnina en hún hefur glímt við mikil áföll. Bróðir hennar lést í bílslysi fyrir mörgum árum en móðir hennar slasaðist einnig í því slysi. Systir hennar slasaðist alvarlega í umferðarslysi nýlega og er bundin við hjólastól.

Hér á landi hefur skapast sú hefð við athöfnina að heiðra þær starfsstéttir sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður. Þeim eru færðar þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf þeirra. Gert er ráð fyrir að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar lendi á þyrlupalli bráðamóttökunnar rétt fyrir athöfnina og verður ökutækjum viðbragðsaðila stillt upp við þyrluna. Má þar nefna ökutæki lögreglu, sjúkrabíla, slökkviliðsbíla, björgunarsveitarbíla og fleiri.

Um það bil 4.000 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. Enn fleiri takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum. Segja má að allir upplifi með einum eða öðrum hætti afleiðingar umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni.

Dagskrá:
• 13:45 – Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við spítalann.
• 14:00 – Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri setur athöfnina.
• 14:05 – Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flytur ávarp.
• 14:10 – Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flytur ávarp og segir frá tilefni dagsins.
• 14:15 – Mínútuþögn.
• 14:16 – Ása Ottesen segir sögu sína.
• 14:30 – Athöfn lýkur.