6 Nóvember 2009 12:00

Karl á fertugsaldri var handtekinn í verslun í Reykjavík síðdegis í gær. Hann var vopnaður hnífi og ógnaði starfsmanni og viðurkenndi að tilgangur hans hefði verið að ræna peningum. Tveir starfsmenn yfirbuguðu ræningjann og héldu honum föstum þar til lögreglan kom á vettvang. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.