31 Desember 2008 12:00

Þrír karlar voru handteknir við Hótel Borg en þar söfnuðust saman liðlega 200 mótmælendur um tvöleytið í dag. Fólkið ætlaði að brjóta sér leið inn á hótelið en þar stóð yfir bein útsending Stöðvar 2 á þættinum Kryddsíld en gestir þáttarins voru forystumenn stjórnmálaflokkanna. Kom til átaka en mótmælendur virtu að vettugi margítrekuð fyrirmæli lögreglu. Hópur fólks ruddist inn í portið sem þarna er og síðan inn um hliðardyr hótelsins. Litlum sprengjum var kastað inni og myndaðist þar talsverður reykur en mótmælendum tókst ekki að komast inn í útsendingarsalinn. Að minnsta kosti einn starfsmaður Stöðvar 2 slasaðist í átökunum og þá voru unnar skemmdir á búnaði sjónvarpsmannanna. Lögreglan beitti varnarúða en margir mótmælendanna létu mjög ófriðlega. Þeir létu sér ekki segjast og hófu ennfremur grjótkast og fóru lögreglumenn ekki varhluta af því. Einn lögreglumaður var fluttur á slysadeild en sá fékk grjót í andlitið og reyndist vera kinnbeinsbrotinn.

Hinir handteknu, sem allir neituðu að hlýða fyrirmælum lögreglu, eru á þrítugs- og sextugsaldri og einn er undir tvítugu. Þeir voru færðir á lögreglustöð og verða yfirheyrðir þar.