15 Febrúar 2013 12:00

Tveir kviknaktir menn sáust á harðahlaupum á lóð Stjórnarráðsins í Lækjargötu í nótt. Óljóst er hvað mönnunum gekk til en þó má fullvíst telja að þeir voru ekki á leið á ríkisstjórnarfund. Vitni, sem sá til strípalinganna, hafði samband við lögreglu, en þegar hún kom á vettvang voru mennirnir á bak og burt. Að sögn tilkynnanda höfðu hinir allsberu klætt sig úr fötunum í biðskýli sem er gegnt Stjórnarráðinu, gengið yfir götuna og síðan hlaupið um lóðina, eins og áður sagði. Eftir uppátækið fóru mennirnir aftur í biðskýlið og klæddu sig í spjarirnar áður en þeir hurfu sjónum. Athæfi þeirra er ekki til eftirbreytni og er m.a. brot á lögreglusamþykkt. Hitt ætti líka öllum að vera ljóst að það að hlaupa um nakinn í frosti getur auðveldlega komið manni í rúmið með slæmt kvef og mikinn hita!