11 Maí 2010 12:00

Nítján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Kópavogi, þrír í Garðabæ og einn í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudag, átta á laugardag, níu á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru fjórtán karlar á aldrinum 19-60 ára og fimm konur, 22-45 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.