9 Mars 2010 12:00

Níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Fimm þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags og voru þær flestar minniháttar. Hinar fjórar líkamsárásirnar áttu sér allar stað í Hafnarfirði. Þrjár teljast líka minniháttar en í þeirri fjórðu voru sjáanlegir áverkar á þolandanum. Sá var bitinn í eyrað þegar hann ætlaði að stöðva slagsmála tveggja manna. Sá sem beitti þessu óþverrabragði var handtekinn en hinn sami gat litlar eða engar skýringar gefið á þessu framferði.