6 Apríl 2010 12:00

Um páskana voru níu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Átta voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á föstudaginn langa, tveir á laugardag, tveir á páskadag og einn aðfaranótt þriðjudags. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 22-52 ára og tvær konur, 18 og 33 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.