14 September 2010 12:00

Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórir voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Kópavogi og Kjósarhreppi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir á aldrinum 19-59 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.