30 Nóvember 2010 12:00

Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fimm á laugardag og þrír á sunnudag. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 20-43 ára og tvær konur, báðar um fertugt. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.