21 Febrúar 2011 12:00

Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Garðabæ og Mosfellsbæ. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, einn á laugardag og sex á sunnudag. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 17-60 ára og tvær konur á þrítugsaldri. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.