24 Október 2011 12:00

Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi og Hafnarfirði. Þrír voru teknir á laugardag, fimm á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 19-79 ára og tvær konur, 21 og 30 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.

Afleiðing ölvunaraksturs.