20 Febrúar 2012 12:00

Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld og fjórir á bæði laugardag og sunnudag. Þetta voru átta karlar á aldrinum 22-39 ára og ein kona, 17 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og þrír hafa aldrei öðlast ökuréttindi.

Afleiðingar ölvunaraksturs.