22 Janúar 2015 14:41

Eitt af því sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgist með í umferðinni er að ökumenn noti þá reinar sem ökutækjum þeirra eru ætlaðar og ekki aðrar. Hér er verið að vísa til þess, sem sést nær daglega í umferðinni, þegar ökumenn notfæra sér sérreinar strætisvagna til að komast leiðar sinnar. Sektarfjárhæð við slíku er kr. 5000. Um þetta er fjallað í 13. gr. umferðarlaga og segir m.a. að þar sem sérstakar reinar eru fyrir mismunandi tegundir ökutækja, skal ökumaður nota þá rein, sem ökutæki hans er ætluð. Á þessu er líka tekið í 5. gr. umferðarlaga (leiðbeiningar fyrir umferð).

Lögreglan hvetur því ökumenn til að virða þessar greinar umferðarlaganna sem og aðrar. Ekki síst svo að þeir sjálfir komist hjá útgjöldum en allnokkrum ökumönnum hefur þegar verið gert að greiða áðurnefnda sekt.