30 Nóvember 2017 16:23

Enn og aftur minnum við á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni. Foreldrar eru hvattir til að setja endurskinsmerki á fatnað barna sinna sem oftar en ekki eru dökkklædd á ferð. Þá er ekki síður mikilvægt að fullorðnir noti þennan sjálfsagða og einfalda öryggisbúnað sér einnig til verndar.

Sýnum gott fordæmi og notum endurskinsmerki. Þannig stuðlum við að eigin umferðaröryggi og annarra.