6 Nóvember 2018 17:12

Nú þegar skammdegið er skollið á þykir rétt að minna enn og aftur á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni. Foreldrar eru hvattir til að setja endurskinsmerki á fatnað barna sinna sem oftar en ekki eru dökkklædd á ferð. Þá er ekki síður mikilvægt að fullorðnir noti þennan sjálfsagða og einfalda öryggisbúnað sér einnig til verndar.

Sérstök ástæða er til að minnast á hlaupahópa í þessu samhengi, en í sumum þeirra vantar talsvert upp á að meðlimirnir noti allir endurskinsmerki þótt þeir séu á ferð í myrkri á eða við umferðargötur. Reiðhjólamenn eru líka minntir sérstaklega á mikilvægi endurskinsmerkja, en þeir eru jafnframt beðnir að ganga úr skugga um að ljósabúnaður hjólanna sé í lagi.

Sýnum gott fordæmi og notum endurskinsmerki. Þannig stuðlum við að eigin umferðaröryggi og annarra.