2 Desember 2016 17:44

Nú þegar skammdegið er skollið á þykir rétt að minna enn og aftur á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni. Foreldrar eru hvattir til að setja endurskinsmerki á fatnað barna sinna sem oftar en ekki eru dökkklædd á ferð. Þá er ekki síður mikilvægt að fullorðnir noti þennan sjálfsagða og einfalda öryggisbúnað sér einnig til verndar. Þetta er áréttað hér sérstaklega vegna þess að í gærmorgun, við umferðareftirlit við grunnskólana í Grafarvogi, var eftir því tekið hversu fáir nemendur voru með endurskinsmerki og ekki þykir ástæða til að ætla að ástandið í þessum efnum sé eitthvað betra í öðrum hverfum á höfuðborgarsvæðinu.

Sýnum gott fordæmi og notum endurskinsmerki. Þannig stuðlum við að eigin umferðaröryggi og annarra.