11 Maí 2020 12:28

Halla Bergþóra Björnsdóttir er nýr lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, en hún tók formlega til starfa í morgun og fékk að sjálfsögðu góðar móttökur við komuna á lögreglustöðina á Hverfisgötu í Reykjavík. Í venjulegu árferði hefði viðhöfnin reyndar verið meiri, en vegna kórónuveirunnar eru enn hólfanir og smitvarnir í gildi hjá embættinu og því gátu færri en ella tekið á móti nýja lögreglustjóranum. Á annarri myndinni fær Halla Bergþóra lögreglukveðju frá yfirlögregluþjónunum Karli Steinari Valssyni og Ásgeiri Þór Ásgeirssyni og Arinbirni Snorrasyni, formanni Lögreglufélags Reykjavíkur, en með þeim eru Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sviðsstjóri ákærusviðs, og Helgi Valberg Jensson aðallögfræðingur. Á hinni myndinni tekur Halla Bergþóra við lyklavöldum af Huldu Elsu, sem í dag felast reyndar ekki lengur af lyklum heldur aðgangskorti! Þess má ennfremur geta að Hulda Elsa gegndi lögreglustjórastarfinu tímabundið síðustu mánuðina og eru henni færðar þakkir fyrir vel unnin störf á erfiðum tíma.

Halla Bergþóra, sem er lögfræðingur að mennt, er enginn nýgræðingur þegar lögreglustörf eru annars vegar. Undanfarin ár var hún lögreglustjóri á Norðurlandi eystra og þar áður sýslumaður á Akranesi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu býður Höllu Bergþóra hjartanlega velkomna til starfa, en starfsmenn embættisins hlakka til að eiga við hana gott samstarf um þau fjölmörgu og mikilvægu verkefni sem fram undan eru.