16 Október 2020 09:52

Ofbeldi er það þegar einhver gerir eitthvað sem meiðir þig eða lætur þér líða illa. Það kallast ofbeldi í nánu sambandi þegar sá sem beitir ofbeldinu er skyldur eða tengdur þér, til dæmis maki, fyrrverandi maki, fjölskyldumeðlimur eða umönnunaraðili. Ofbeldi á sér stað óháð kyni, aldri, kynhneigð eða hverju öðru. Ofbeldi er alls konar.