12 Maí 2020 10:52

Skráð voru 639 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í apríl og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir apríl 2020.

Tilkynningar um þjófnaði fækkaði á milli mánaða og var þar helst að sjá fækkun á þjófnaði á farsímum og hnupli. Hins vegar fjölgaði tilkynningum um innbrot á milli mánaða og voru þar innbrot í ökutæki að telja hlutfallslega mest.

Skráðum ofbeldisbrotum fjölgaði töluvert á milli mánaða og voru það minniháttar líkamsárásir sem þar töldu mest. Sömuleiðis fjölgaði tilvikum um ofbeldi og hótun um ofbeldi gagnvart lögreglumönnum. Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgaði á milli mánaða og bárust alls 77 tilkynningar í aprílmánuð. Það sem af er ári hafa borist um 11% fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkar lítillega á milli mánaða og var ekkert stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í apríl. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í apríl voru skráð 701 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 26 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan. Vert er að taka fram að skráðum umferðarlagabrotum fækkaði töluvert miðaða við útreiknuð mörk fyrir síðustu 12 mánuði á undan.